|
Til þess að fá réttindi á bifhjól þarf taka 24 tíma bóklegt nám og að minsta kosti 9 tíma verklegt nám. Þeir sem hafa B-réttindi (almenn ökuréttindi) þurfa að taka 12 tíma bóklegt nám og 9 tíma verklegt nám. Nám hefst á bóklegu námi sem endar með prófi og taka þvínæst verklegir tímar við. M - Létt bífhjól (Skellinaðra) Veitir rétt til að stjórna: léttu bifhjóli/skellinöðru með slagrými ekki yfir 50 sm3 og ekki hannað til hraðari aksturs en 45 km. Aldurstakmark fyrir M réttindi er 15 ár. A1 - Bifhjól 125 cc eða minna Veitir rétt til að aka bifhjóli sem er 125sm3 eða minna og afl þess 11kw eða minna. Aldursmörk eru 17 ár. A - Litið bífhjól Veitir rétt til að stjórna: litlu bifhjóli , en undir það flokkast: - * tvíhjóla bifhjól/mótorhjól án hliðarvagns þar sem hlutfall vélarafls og eigin þyngdar fer ekki yfir 0,16 kW/kg (0,21 hp/kg). Þá má vélarafl bifhjólsins ekki fara yfir 25 kW (34hp),
- * tvíhjóla bifhjól með hliðarvagni þar sem hlutfall vélarafls og eigin þyngdar fer ekki yfir 0,16 kW/kg (0,21 hp/kg),
- * þríhjóla bifhjól,
- * létt bifhjól og torfærutæki.
Aldurstakmark er 17 ár
A - Stórt bífhjól Veitir rétt til að stjórna: stóru bifhjóli , en undir það flokkast: * tvíhjóla bifhjól án hliðarvagns þar sem hlutfall vélarafls og eigin þyngdar fer yfir 0,16 kW/kg (0,21 hp/kg), það veitir einnig rétt til að stjórna vélsleða og önnur þau tæki sem upp eru talinn hér fyrir ofan. Aldurstakmark 21 ár eða að hafa verið með "A Lítið bifhjól" í amk 2 ár. Verð (Verklegt og bóklegt) M réttindi - ca 40.000kr (Fer eftir fjölda verklegra tíma) A réttindi - ca 70.000kr (Fer eftir fjölda verklegra tíma og að viðkomandi hafi B. réttindi) Annað Bókleg námskeið eru oftast haldin á vorin og eru auglýst hér á síðunni og í staðarblöðunum.
|